Þetta plötuumslag á sér augljósa skírskotun í bækurnar um Lukku Láka hvað teiknistílinn varðar - en með hverjum er þessi plata?
Hallbirni Hjartarsyni
Johnny King (Jóni Víkingssyni)
Gis Johannssyni
Fræbbblunum
Útlögum
Á fyrsta áratug 21. aldarinnar starfaði hljómsveit fyrir norðan sem vísaði til Andrésar Andar, hún hét Rip, Rap og ______________
eggið
Garfunkel
svo framvegis
Fedtmule
Rup
Einn þessara sigurvegara Músíktilrauna sótti nafn sitt í teiknimyndasögu, hvaða sveit?
Kolrassa krókríðandi
Maus
Retrobot
Of monsters and men
Ateria
Hljómsveitarnafnið Zefklop er kannski ekki þekktasta nafn sinnar tegundar en sveit með því nafni starfaði á höfuðborgarsvæðinu um síðustu aldamót. Úr hvaða teiknimyndasögu kemur orðið „zefklop“?
Aparnir hans Nóa (Svalur og félagar)
Við hlið vítis (Frank)
Landið týnda (Hinrik og Hagbarður)
Valdabrautin (Ævintýri Vals geim- og tímaspæjara)
Í myrkum mánafjöllum (Tinni)
Eitt af eftirtöldu er ekki íslenskt hljómsveitarnafn:
Ástríkur í helvíti
Tinni og Pikkarónarnir
Vigga viðutan
Fláráður stórvezír
Zorglúbb
Hvaða hljómsveitarnafn á sér rætur úr Atómstöðinni eftir Halldór Laxness?
200.000 naglbítar
Sálin hans Jóns míns
Tappi tíkarrass
Sjálfsmorðssveitin
Das Kapital
Hér að neðan eru skírskotanir til barnabókahöfundarins Enid Blyton - Hver þeirra var nafn á íslenskri hljómsveit?
Ævintýraeyjan
Doddi & Eyrnastór
Kíkí
Fimm í hers höndum
Dularfulla stjarnan
Hver þessara hljómsveita, sem tengd eru norrænum barnabókmenntum, hefur aldrei starfað?
Karíus og Baktus
Rassálfarnir
Hemúllinn
Ljónshjarta
Mikki refur
Í laginu Aksjón maður með Spilverki þjóðanna koma fyrir nokkrar persónur úr bókmenntum. Hver neðangreindra kemur ekki við sögu þar?
Tinni
Skuggi
Tarzan
Morgan Kane
Íslandsbersi
Eitt þessara hljómsveitanafna var til í raunveruleikanum og vísar til Egils sögu Skallagrímssonar - hvert þeirra?
Egla
Skallagrímurnar
Þorgerður brák
Borg
Sonatorrek
Þekkt hljómsveit frá pönktímabilinu hélt tvo liðsmenn sem síðar urðu þekktir rithöfundar - hvaða hljómsveit var það?
Q4U
Sjálfsfróun
Fræbbblarnir
Heróín
Purrkur Pillnikk
Sálin hans Jóns míns gaf út safnplötuna Gullna hliðið og aðdáendaklúbbur sveitarinnar bar nafnið Gullna liðið en hver skrifaði leikritið Gullna hliðið?
Jökull Jakobsson
Guðrún Eva Mínervudóttir
Ólafur Jóhann Ólafsson
Svava Jakobsdóttir
Davíð Stefánsson
Hver eftirfarandi lagatitla á plötu Skálmaldar - Börn Loka vísar EKKI til barna Loka?
Fenrisúlfur
Miðgarðsormur
Sleipnir
Gleipnir
Váli
Ævisaga einnar söngkonu hér að neðan hefur aldrei komið út - hverrar þeirrar?
Ruth Reginalds
Diddúar
Þuríðar Pálsdóttur
Guðrúnar Á. Símonar
Ragnhildar Gísladóttur
Einn af þessum tónlistarmönnum hefur aldrei sent frá sér skáldsögu. Hver þeirra?
Eyjólfur Kristjánsson
Bragi Ólafsson
Valgeir Guðjónsson
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Böðvar Guðmundsson
Við ljóð hvers ljóðskálds hér að neðan hafa flest lög verið samin við?
Stefáns Harðar Grímssonar
Theódóru Thoroddsen
Ingibjargar Haraldsdóttur
Steins Steinarr
Huldu
Í Stuðmannalagi einu er vísað til ljóðsins Skúlaskeið eftir Grím Thomsen, hvernig hljómar sú ljóðlína?
Mig langar sjúklega að skreppa á ball í kvöld
Lýðræðið er til margra hluta nytsamt
Veturinn var grimmur, gaf mér fáa kosti
Aldrei óviss í anddyrinu, komin með hálfan fótinn inn
Þeir eltu hann á átta hófa hreinum
Hverjir eftirtalinna teljast EKKI vera úr heimi bókmenntanna?
Smjattpattarnir
Strumparnir
Baldur og Konni
Barbapaparnir
Dýrin í Hálsaskógi
Hver var titill bókar Sólmundar Hólm um Gylfa Ægisson sem kom út 2009?
Sjúddirarí Rei
Minning um mann
Stolt siglir fleyið mitt
Í sól og sumaryl
Vertu sæll Bakkus
Hvert þessara hljómsveitanafna hefur aldrei komið út sem bókartitill?
Land og synir
Sálin hans Jóns míns
Mary Poppins
Vikivaki
Brimkló